Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Teymis, hefur keypt fyrir 184,5 milljónir króna í félaginu, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Eru viðskiptin gerð í gegnum eignarhaldsfélagið Ólaf Þór Jóhannesson ehf., sem hann á.

Hlutunum fylgir söluréttur sem verður virkur árið 29. ágúst árið 2010.

Kaupin fóru fram á núverandi markaðsgengi eða 6,15 krónur á hlut, og eru þetta 30 milljónir hluta.