Apple hefur framleiðslu á snjallúri, svokölluðu iWatch, í næsta mánuði. Apple býst við því að selja ekki minna en 50 milljónir eintaka af úrinu á fyrsta árinu. Reuters fréttastofan greinir frá því.

Samkvæmt Reuters verður úrið svo kynnt opinberlega í október. Þá er búist við því að Apple kynni í haust bæði nýja útgáfu af iPhone og nýja útgáfu af iPad.