Vísitala framleiðsluverðs í júní 2014 var 199,8 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 1,0% frá maí 2014. Þetta kemur fram á vef hagstofunar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 254,0 stig, sem er hækkun um 1,4% (vísitöluáhrif 0,5%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 187,8 stig, lækkaði um 2,2% (-0,7%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,1% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 7,4% (1,2%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 2,6% (0,7%) milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um
0,4% (0,3%).

Miðað við júní 2013 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 1,8% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 1,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 9,8% en matvælaverð hefur hækkað um 2,1%.