Eins og kunnugt er hafa Landsvirkjun, Alcoa og Þeistareykir ehf. unnið sameiginlega að undirbúningi jarðvarmavirkjana á Norðausturlandi vegna orkusölu til fyrirhugaðs álvers Alcoa á Bakka við Húsavík.

Vegna óvissuástands á fjármálamörkuðum er það sameiginleg niðurstaða fyrirtækjanna að fresta rannsóknarborunum um sinn, sem þýðir að ákvörðun um framhald borana mun bíða fram til haustsins 2009.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá fyrirtækjunum.

Þar kemur fram að viljayfirlýsing Landsvirkjunar og Alcoa rennur út nú um mánaðamótin október/nóvember.  Í tilkynningunni segir að fyrirtækin munu engu að síður hafa náið samband og samráð um framvindu mála með það að leiðarljósi að framlengja viljayfirlýsinguna og halda verkefninu áfram þegar aðstæður leyfa.

Þá kemur fram að viljayfirlýsing milli ríkisstjórnar, Norðurþings og Alcoa stendur óbreytt og það sama gildir um viljayfirlýsingu milli Landsnets og Alcoa.

Einnig kemur fram að Landsvirkjun, Alcoa, Þeistareykir ehf. og Landsnet munu vinna áfram við mat á umhverfisáhrifum verkefnanna; orkufyrirtækin við mat á umhverfisáhrifum rannsóknaborana og virkjana á Kröflu- og Þeistareykjasvæðinu og Alcoa við mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka og Landsnet vegna flutningslína.

Þessi vinna er liður í endanlegu mati á umhverfisáhrifum þessara framkvæmda og sameiginlegu mati á þeim.