Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð í vikunni, eða um 33% milli vikna, en hafði í vikunni á  undan dregist saman um 20% milli vikna.

Þannig nam veltan í vikunni 1.579 milljónum króna samkvæmt gögnum frá Fasteignaskrá Íslands og hefur ekki verið meiri á einni frá því í byrjun maí. Í vikunni á undan nam veltan 1.1190 milljónum króna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar milli vikna en hafði í síðustu viku minnkað í fyrsta skipti í fjórar vikur. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 1.373 milljónum króna. Í þar síðustu viku hafði fjögurra vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í lok maí en í ágúst var fjögurra vikna meðalveltan undir milljarði króna þrjár vikur í röð. Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,6 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan maí.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 47% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 67% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar enn á milli vikna, sjöundu vikuna í röð, nú um 6 milljónir króna, og nemur nú 1.190 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur þó dregist saman um 50% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 63% milli ára.

Ársbreyting á vikuveltu hefur dregist saman 27%. Rétt er þó að hafa í huga að velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.

Til gamans má þó skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.197 milljónir króna, og hefur lækkað jafnt og þétt s.l. 22 vikur, samanborið við 3.151 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 62% milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 54 kaupsamningum þinglýst í vikunni, sem er talsvert yfir meðallagi en 45 samningum var þinglýst í vikunni þar á undan. Alls hefur 36 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári. Til gamans má geta að aldrei á árinu hefur jafn mörgum samningum verið þinglýst í einni viku og í þar síðustu viku eða 57 samningum.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar milli mánaða og nemur nú 29,2 milljónum króna, samanborið við 26,4 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 32,4 milljónir króna.