Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 311,7 stig í júlí og hækkaði um 0,3% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamati ríkisins).

Þetta er í fyrsta skipti í 12 mánuði, eða frá því í júlí í fyrra sem vísitala íbúðaverðs hækkar á milli mánaða.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað síðasta árið en í mars og apríl á þessu ári tók vísitalan nokkra dýfu niður á við. Þannig lækkaði vísitalan um 3,8% í mars sl. sem þá var mesta lækkun milli mánaða í yfir 15 ár eða frá því að byrjar var að reikna vísitölu íbúðaverðs.

Í raun hefur íbúðaverð lækkað töluvert frá því í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum) en síðan þá hefur íbúðaverð lækkað um tæp 13%. Á hálfu öðru ári hefur íbúðaverð þannig aðeins hækkað tvisvar milli mánaða, þar til nú.

Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitala íbúðaverðs um 0,8%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 7,7% og lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 11,2%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.