Færeyska dagblaðið Dimmalætting hefur keypt blöðin Vinnuvitan og Vikublaðið. Dimmalætting mun áfram gefa út blöðin undir sama nafni til að byrja með. Þetta mun styrkja stöðu Dimmalættingar gagnvart Sosialnum, sem er hitt stóra dagblaðið í Færeyjum. Síða færeyska útvarpsins greinir frá þessu.

Stjórn Dimmalættingar vildi ekki gefa upp kaupverðið.

Jafnframt hefur verið tilkynnt að ekki munu koma til uppsagna í hinni nýju samstæðu, en einhverjir starfsmenn gætu þurft að flytja sig á milli blaða.