Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn lífeyrissjóður ársins á Íslandi af fagtímaritinu Acquisition International. Þetta kemur fram í sérstakri útgáfu tímaritsins um verðlaunin sem eru veitt á hverju ári þeim sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði síðastliðna12 mánuði.

Fram kemur í tilkynningu frá Arion banka að það sem dómnefndin leit til við val sitt á sjóðnum var m.a. uppbygging sjóðsins þar sem sjóðfélagar geta ráðstafað skylduiðgjöldum sínum í samtryggingarsjóð og séreignarsjóð, fjölbreyttir valkostir í útgreiðslum fyrir sjóðfélaga og mikil fjölgun sjóðfélaga þrátt fyrir frjálsa aðildarskyldu að sjóðnum. Jafnframt að sjóðnum hefði tekist að verja hagsmuni sjóðfélaga við erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum.

Acquisition International er alþjóðlegt tímarit um fjármál sem er gefið út mánaðarlega í 53 þúsund eintökum. Með því að smella hér má sjá verðlaunaútgáfu tímaritsins.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er rúmlega 136 milljarðar að stærð og sjóðfélagar eru tæplega 50 þúsund talsins. Sjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% skylduiðgjald og hentar jafnframt þeim sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.