Sumaráætlun Delta Air Lines hófst í morgun þegar Boeing 757 þota félagsins lenti á Keflavíkurflugvelli. Vélar flugfélagsins munu lenda daglega á Keflavíkurflugvelli í allt sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem flugfélagið býður upp á dagleg flug milli Íslands og New York

Fram kemur í tilkynningu frá Delta að þetta er fjórða sumarið í röð sem Delta býður upp á flug milli Keflavíkurflugvallar og JFK flugvallar í New York. Um er að ræða verulega aukna ferðatíðni hjá Delta til að bregðast við vaxandi áhuga ferðamanna vestan hafs á Íslandi. Fyrstu fjóra mánuði þessa árs fjölgaði ferðamönnum frá áfangastöðum í Norður-Ameríku um 43% miðað við sama tíma í fyrra.