Félag atvinnurekenda geldur varhug við áformum um nýjan sykurskatt og fleiri breytingar á skattlagningu matvæla, sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur kynnt fyrir ríkisstjórninni og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í gær. Frá þessu er greint á vef Félags atvinnurekenda . Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, gagnrýndi þessar skattatillögur í viðtali á Rás 2 í morgun.

Þrjú skattþrep auk vörugjalda

Ólafur benti á að undanfarin ár hefði náðst verulegur árangur í að einfalda kerfi neysluskatta, afleggja vörugjöld og skattleggja alla matvöru í sama þrepi virðisaukaskatts. Að mati FA ætti að stefna að einu, lágu virðisaukaskattsþrepi fyrir allar vörur og þjónustu. Tillögur Landlæknis gengju þvert gegn þessu og myndu flækja skattkerfið á ný með tilheyrandi flækjustigi, óhagræði og umstangi fyrir fyrirtæki og hættu á undanskotum frá skatti. Tillögur Landlæknis ganga út á að færa sykraðar vörur í hærra virðisaukaskattþrep en „hollustu“, t.d. grænmeti og ávexti, í lægra þrep. Þá eru aftur orðin til þrjú virðisaukaskattþrep í matvöru, en auk þess leggur embættið til ný vörugjöld þannig að gosdrykkir og sælgæti hækki í verði um 20%.

Af hverju ekki skattalækkun á hlaupaskóm?

Ólafur sagði ýmislegt jákvætt í aðgerðaáætlun, sem Landlæknisembætti hefur unnið og heilbrigðisráðherra kynnti í ríkisstjórn, þar á meðal ákvæði um upplýsingar og hvatningu til bæði verslana og neytenda til að stuðla að hollari neysluvenjum. Sjá mætti ýmis dæmi um að verslanir hefðu breytt uppröðun vara þannig að t.d. ávöxtum væri frekar haldið fram á kostnað sælgætis. Ólafur varaði hins vegar við því að ríkisvaldið færi að setja reglur um uppröðun vara í verslunum og hafa eftirlit með henni.

Ólafur tók undir það að sykurskatturinn gæti talist forsjárhyggja og sagði: „Það er bara svo óskaplega erfitt þegar stjórnvöld eru farin að ákveða fyrir okkur hvað er hollt og hvað er óhollt og breyta verðinu á hlutum til að stýra neyslunni. Hvar endar það? Ef við ætlum að leggja á skatta eftir þessu, af hverju eru þá ekki háir skattar á sjónvörpum? Af hverju eru ekki lágir skattar á hlaupaskóm og reiðhjólum, og svo framvegis? Þetta er röksemdafærsla sem endar bara strax úti í skurði.“