Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar féll um 2,13% í Kauphöllinni í dag. Ekki voru mikil viðskipti á bak við þróunina eða upp á eina milljón króna. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa bæði Haga og Marel um 0,79%, TM fór niður um 0,19% og fasteignafélagsins Regins um 0,16%.

Á hinn bóginn hækkaði gengi bréfa VÍS um 0,89% og Icelandair Group um 0,08%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,39% og endaði hún í 1.119 stigum. Heildarviðskipti með hlutabréf var í lægri kantinum eða upp á rúmar 298 milljónir króna.