Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 201.500 en voru 196.800 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um rúm 2% milli ára.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þar kemur fram að gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu, þar sem gistinætur stóðu í stað á  milli ára.

Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Austurlandi, um 10% og á Suðurlandi um 8%. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 11.400 í 12.600 og á Suðurlandi úr 30.400 í 32.800 á milli ára.

Gistinóttum á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins fjölgaði um tæp 3% milli ára

Gistinætur á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins voru 786.000 en voru 766.000 á sama tímabili árið 2007.

Fjölgun varð á Suðurlandi um 13% og á höfuðborgarsvæðinu um rúm 2% milli ára.

Gistinætur stóðu í stað eða fækkaði á öðrum landsvæðum, mest var fækkunin á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða eða um 2%.

Fjölgun gistinátta fyrstu sjö mánuði ársins má aðallega rekja til Íslendinga, 9%. Gistinóttum útlendinga fjölgar um tæpt 1% á milli ára.