Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.450.000.000 króna á bilinu 3,49% - 3,74% í skuldabréfaútboði Lánasjóðs sveitafélaga í flokki LSS150224 fyrir helgi.

Þetta kemur fram í tilkynningu sjóðsins til Kauphallarinnar en ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.150.000.000 króna á ávöxtunarkröfunni 3,60%.

Útistandandi fyrir voru 20.572.000.000 króna en heildarstærð flokksins er nú 21.722.000.000 króna.