Eftir hrun bankakerfisins í októberbyrjun dró mjög sundur með gengi krónunnar á erlendum mörkuðum og því gengi sem Seðlabankinn skráir.

Fyrir hrunið var skráð gengi Seðlabanka það gengi sem gilti á millibankamarkaði með gjaldeyri um kl.11 að morgni viðkomandi dags.

Frá 15. október hefur skráða gengið hins vegar ráðist í daglegu gjaldeyrisuppboði bankans.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis í morgun en Greining Glitnis segir að undanfarið hafi verulega dregið í sundur á ný með gengi krónunnar hérlendis og því gengi sem ríkir á erlendum mörkuðum.

„Evran kostar nú allt að 300 kr. meðal erlendra miðlara en 187 kr. hér á landi miðað við niðurstöðu uppboðs Seðlabankans í gær,“ segir í Morgunkorni.

„Hins vegar er líklegt að erlendur markaður með krónur lognist að miklu leyti út af nú, þar sem Íslendingar mega ekki lengur eiga hrein gjaldeyrisviðskipti utan landsteinanna samkvæmt lögum og reglum Seðlabankans um gjaldeyrismál.“

Framboð líklega að þorna upp

„Fróðlegt verður að fylgjast með þróun gengis krónu á erlendum mörkuðum í kjölfarið á þeim reglum sem Seðlabankinn setti síðastliðinn föstudag,“ segir Greining Glitnis í Morgunkorni og bætir við að samkvæmt þeim verða íslensk fyrirtæki að skila gjaldeyristekjum til íslenskra fjármálastofnana.

Þá segir Greining Glitnis að töluverð viðbrögð virðast hafa verið að sölu Íslendinga á gjaldeyri erlendis fyrir íslenskar krónur.

„Er það skiljanlegt í ljósi þess hversu miklu fleiri krónur hafa fengist fyrir evrur erlendis en í uppboðum Seðlabankans,“ segir í Morgunkorni.

„Hins vegar mun framboð á krónum erlendis nú líklega þorna upp að mestu leyti, og líklegt að gengi krónu á erlendum mörkuðum færist nær því gengi sem gilda mun hér á landi. Mikilvægt er að tvöfaldur markaður með krónur festist ekki í sessi, enda grefur það undan trúverðugleika krónunnar og hindrar að áætlun íslenskra yfirvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðugleika og síðar styrkingu gjaldmiðilsins gangi eftir.“

Sjá nánar í Morgunkorni Glitnis.