Gríðarleg fjölgun hefur orðið á ábyrgðarsendingum hingað til lands frá Kína og Hong Kong. Á síðasta ári komu samtals 77.806 sendingar þaðan í gegnum tollpóst. Árið 2012 komu 16.548 sendingar og 12.101 árið 2011. Sé litið til einstakra mánaða á nýliðnu ári bárust flestar sendingarnar frá Kína og Hong Kong í nóvember, 14.764 talsins. Þetta kemur fram á vef Tollstjóra en þessi fjölgun er talin stafa af auknum innkaupum einstaklinga á netinu.

Þessu til viðbótar voru á árinu 2013 um 180.000 sendingar afgreiddar með einfaldri tollafgreiðslu. Slíkar sendingar voru um 133.000 árið 2012. Tollafgreiddar almennar sendingar á síðasta ári voru samtals 84.740, en 25.610 árið 2012, þannig að þar er einnig um að ræða verulega aukningu milli ára.