Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Guðgeir Eyjólfsson, sýslumann í Keflavík, til að vera sýslumaður í Kópavogi frá og með 1. júní 2008.  Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.

Þrettán umsóknir bárust um embættið. Auk Guðgeirs sóttu eftirtaldir um:

Birna Salóme Björnsdóttir, aðstoðardeildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík

Bogi Hjálmtýsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins í Hafnarfirði

Brynjar Kvaran, staðgengill og skrifstofustjóri sýslumannsins í Kópavogi

Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu

Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu

Halldór Frímannsson, sérfræðingur - lögmaður á Fjármálasviði Reykjavíkurborgar

Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum

Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði

Ólafur Hallgrímsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins á Ísafirði

Sigríður Eysteinsdóttir, löglærður fulltrúi í sifja- og skiptadeild sýslumannsins í Reykjavík

Úlfar Lúðvíksson, staðgengill og skrifstofustjóri sýslumannsins í Reykjavík

Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík