Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,11% í viðskiptum dagsins í dag. Gengi bréfa BankNordik hækkaði um 2,91% í dag og þá hækkaði gengi Icelandair um 0,42% og Marel um 0,32%. Bréf Fjarskipta lækkuðu hins vegar um 1,34%, Regins um 0,47% og Haga um 0,37%. Þá hækkuðu hlutabréf HB Granda um 2,7% á First North markaðnum í 52.242 króna viðskiptum. Velta á hlutabréfamarkaði alls nam 427,4 milljónum króna í dag.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,34% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,33% og sá óverðtryggði um 0,38%. velta á skuldabréfamarkaði nam 5,5 milljörðum króna. Í vikunni hækkaði skuldabréfavísitalan um 0,68% og var meðalvelta á dag um 4,7 milljarðar.