Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Sigurjón Þ. Árnason, fyrverandi bankastjóri Landsbankans, sæti gæsluvarðhaldi til 25. janúar næstkomandi.

Þetta kemur fram á mbl.is.

Sigurjón var úrskurðaður í gæsluvarðhald síðasta föstudag, 14. janúar. Þeirri niðurstöðu var áfrýjað til Hæstaréttar sem tók gæsluvarðhaldsúrskurðinn til meðferðar í dag.