Hagnaður Regins fasteignafélags eftir tekjuskatt nam 1.304 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins en alls voru rekstrartekjur 2.510 milljónum. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og matsbreytingu var 1.442 milljónir. Félagið birti árshlutauppgjör í gær.

Söluhagnaður á tímabilinu nam 770 milljónum. Hagnaður á hlut var 1,04 en það var skráð í Kauphöllina fyrr á þessu ári. Eiginfjárhlutfall félagsins er 34%.

Afkomutilkynning Regins .