Hagnaður Tabula Rasa,  sem á 31,25% í útgerðarfyrirtækinu Þorbirni hf.,  nam 16,6 milljónum króna árið 2015. Árið 2014 tapaði félagið hins vegar rúmri  milljón. Hagnaður fyrirtækisins  fyrir skatta nam 16,8 milljónum  en nam 2,3 milljónum fyrir skatta árið áður.

Eigið fé Tabula Rasa í lok árs 2015 nam 314,4 milljónum en á sama tíma árið áður nam það 301,4 milljónum.  Framkvæmdastjóri Tabula Rasa og stærsti hluthafi er Gerður Sigríður Tómasdóttir.