Afkoma nýliðins árs var sú besta í sögu Virðingar hf., en hagnaður félagsins á árinu 2016 var liðlega 460 milljónir króna, samanborið við 104 milljóna króna hagnað árið 2015. Hreinar rekstrartekjur námu 1.275 milljónum króna og jukust um 43% milli ára. Eiginfjárhlutfall Virðingar var 37,1% í lok árs samanborið við 28,5% árið áður. Þetta segir í tilkynningu frá Virðingu.

„Rekstur Virðingar gekk vel á öllum sviðum á síðasta ári sem er okkar besta frá upphafi. Heildarfjárhæð eigna í stýringu nam um 100 milljörðum króna í lok árs. Mikill vöxtur var á öllum sviðum félagsins og útlitið er bjart,“ segir Hannes Frímann Hrólfsson, forstjóri Virðingar.

Fyrirtækjaráðgjöf Virðingar sá einnig um fjögur veigamikil söluferli á árinu; Söluna á Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni, á Lyfju, á Leigufélaginu Klett og fasteignafélaginu BK eignum. Framtakssjóðir í rekstri félagsins skiluðu afar góðri afkomu og ávöxtun eigna í stýringu Virðingar var góð. Auk þess var góð afkoma af rekstri markaðsviðskipta félagsins.

Tækifæri til áframhaldandi vaxtar hérlendis og erlendis

„Þá hefur Virðing fengið heimild breska fjármálaeftirlitsins til að fara með virkan eignarhlut í bresku verðbréfafyrirtæki sem mun hljóta nafnið Virðing Securities. Starfsemi þess félags mun hefjast formlega nú í febrúar. Það blasa því við fjölmörg tækifæri til áframhaldandi vaxtar bæði hérlendis og erlendis,“ segir Hannes.

Eins og áður hefur komið fram hafa Virðing og Kvika undirritað viljayfirlýsingu um sameiningu félaganna og standa nú yfir áreiðanleikakannanir í tengslum við það.