Tap Spalar ehf., sem rekur Hvalfjarðargöngin eftir skatta fyrir frá 1. október 2009 til 31. mars 2010 nam kr. 40,6 milljónir króna. Á sama tímabili í fyrra var tapið 233 milljónir króna. Viðsnúningurinn er því nokkur enda var gjaldskráin í Hvalfjarðargöngin hækkuð um 12,5% í byrjun febrúar síðastliðinn. Reikningsár Spalar er 1. október til 30. september ár hvert.

Hagnaður Spalar eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. janúar 2010 til 31. mars 2010 nam 13,5 milljónum króna. Á sama tíma árið á undan nam tap félagsins 88 milljónir króna. Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.

Gylfi Þórðarson, framkæmdastjóri Spalar, segir í tilkynningu frá félaginu að umferð og tekjur séu nokkurn veginn í samræmi við áætlanir. Vegna mikillar verðbólgu árin 2008 og 2009 hafi verið nauðsynlegt að hækka gjaldskrá félagsins um  12,5% 1. febrúar 2010. Þar sem umferð og tekjur séu umtalsvert meiri seinni hluta rekstrarársins er útlit fyrir mjög ásættanlega niðurstöðu fyrir rekstrarárið í heild.

Í árshlutauppgjöri Spalar eru þessar niðurstöður dregnar sérstaklega fram af félaginu sjálfu:

  • Veggjald nam 356 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 344 m.kr. árið áður sem er  3,5% hækkun.
  • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 147 m.kr. og hækkar um tæpar 18 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 129 m.kr Hækkunin liggur að stærstum hluta í aukningu launkostnaðar og aðkeyptrar ráðgjafaþjónustu og afskrifaðra viðskiptakrafna vegna gjaldþrota.
  • Afskriftir á tímabilinu námu samtals 57 m. kr. og lækka á milli ára um 50,9%, sem skýrist af breytingu á reikningshaldslegu mati á líftíma ganganna.
  • Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli tímabila um 213 m. kr.
  • Skuldir Spalar ehf hækka úr 4.413 m.kr. þann 30. september 2009 í 4.615 m.kr. þann 31. mars 2010.