Hagnaður tryggingafélagsins Sampo á fyrsta ársfjórðungi var 106 milljónir evra, en það er um 10% undir afkomuspám að því er kemur fram í Vegvísi Landsbankans í dag. Hagnaðurinn dróst saman um 48% milli ára vegna lækkunar á verðmæti fjárfestinga félagsins.

Sampo er stærsta tryggingafélag Norðurlandanna og er að hluta til í eigu Exista.