Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir janúar 2009 nam útflutningur 33,6 milljörðum króna og innflutningur 33,3 milljörðum króna.

Vöruskiptin í janúar, reiknuð á verðmæti, voru því hagstæð um 0,3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en þar kemur fram að vísbendingar eru um minna verðmæti útfluttra sjávarafurða og áls en meira verðmæti innflutts eldsneytis og hrá og rekstrarvara í janúar 2009 miðað við desember 2008.