Landsframleiðslan á fyrsta ársfjórðungi 2015 jókst um 2,9% borið saman við sama tímabil á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 9,9%. Einkaneysla jókst um 3,9%, samneysla um 1,5% og fjárfesting um 23,5%. Útflutningur jókst um 2,7% en innflutningur töluvert  meira, eða um 17,4%.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 1,5% milli 4. ársfjórðungs 2014 og 1. ársfjórðungs 2015. Þar af jókst einkaneysla um 0,8%, samneysla um 0,3% og fjárfesting um 16,1%. Innflutningur jókst um 12,8% á meðan útflutningur jókst um 2,4%.