Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2018 jókst að raungildi um 6,6% frá sama ársfjórðungi í fyrra. Þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 6,8%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Einkaneysla jókst um 5,9%, samneysla um 2,9% og fjárfesting um 11,6%. Útflutningur jókst um 11,1% á sama tíma og innflutningur jókst um 14,9%.

Helstu drifkraftar hagvaxtar er fjárfesting og einkaneysla. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 2,6% milli 4. ársfjórðungs 2017 og 1. ársfjórðungs 2018.

Uppfært: Hagstofan hefur uppfært tölur sína um landsframleiðslu á fyrsta ársfjórðungi og hefur fréttinni verið breytt.