Halldór Kristmannsson, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri samskiptasviðs Eimskips [ HFEIM ] samstæðunnar og mun hefja störf 1. mars næst komandi, að því er segir í tilkynningu Eimskips. Halldór lét nýlega af störfum sem framkvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group [ FL ], sem hann hafði gegnt frá því í september 2007. Þar áður var hann framkvæmdastjóri samskiptasviðs Actavis í sex ár. Áður var Halldór fjármálastjóri Ísafoldarprentsmiðju.

Halldór verður hluti af framkvæmdastjórn Eimskips samstæðunnar og mun bera ábyrgð á samskiptamálum félagsins, þ.á.m. samskiptum við fjárfesta, hluthafa, fjölmiðla, innri samskipti og ímyndaruppbyggingu félagsins á Íslandi og erlendis. Þá mun Halldór einnig taka þátt í ýmsum öðrum verkefnum móðurfélags, m.a. á sviði samþættingar nýrra félaga og fjárfestinga. Halldór mun hefja störf hjá félaginu þann 1. mars n.k.

Heiðrún Jónsdóttir sem áður gegndi starfi framkvæmdastjóra samskiptasviðs Eimskips ásamt því að vera framkvæmdastjóri starfsþróunar og lögfræðimála hjá Eimskip mun nú einbeita sér að stjórn starfsþróunar og lögfræðimála hjá Eimskip, segir í tilkynningunni.

Í tilkynningunni eru eftirfarandi ummæli höfð eftir Stefáni Ágústi Magnússyni forstjóra Eimskips: „Við bjóðum Halldór velkominn til starfa. Hann hefur umfangsmikla reynslu á sviði samskipta- og ímyndarmála og hefur tekið virkan þátt í stjórnun og stefnumótun á alþjóðlegum vettvangi. Ráðning hans er góð viðbót við öfluga stjórnendur samstæðunnar. Samhliða  þróun og samþættingu félagsins almennt á næstu árum er markmið okkar að efla enn frekar samskipti okkar við fjárfesta og fjölmiðla, að félagið verði vel þekkt á alþjóðlegum vettvangi jafnt sem á Íslandi og að áfram verði unnið að samþættingarverkefnum innan samstæðunnar.“