Heildarsala skuldabréfa í október 2008 nam um 0,8 milljörðum króna samanborið við 30,1 milljarð króna í sama mánuði ári áður.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Þar kemur fram að sSalan skiptist þannig að um 0,5 milljarðar króna var í formi verðtryggðra skuldabréfa og um 0,3 milljarðar var í formi óverðtryggðra skuldabréfa.

Uppsöfnuð sala skuldabréfa frá janúar - okt. 2008 nam um 248 milljörðum króna, samanborið við um 327 milljarða á sama tímabili árið 2007.