Samkeppniseftirlitið hefur endurskoðað skyldu Arion banka hf. til að selja eignarhlut sinn í AFLi-sparisjóði ses. Arion banka er heimilt að grípa til nauðsynlegra ráðstafana, þ.m.t. kaupa á stofnfjárbréfum í eigu þriðju aðila, með það að markmiði að sameina AFL við Arion banka.

Hér fyrir neðan má lesa tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu um málið:

Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 9/2015 sem birt var þann 8. maí sl. var tekin afstaða til yfirráða Arion banka hf. yfir AFLi-sparisjóðs ses. Grundvallaðist ákvörðunin á sátt sem Samkeppniseftirlitið og Arion banki gerðu með sér á grundvelli samkeppnislaga í framhaldi af því að bankinn hafði öðlast full yfirráð yfir sparisjóðnum. Var sáttin bundin tilteknum skilyrðum sem Arion banki skuldbatt sig til þess að fara eftir, s.s. að setja AFL-sparisjóð í söluferli.

Í ákvörðun sem birt er í dag á heimasíðu eftirlitsins kemur fram að Samkeppniseftirlitið telji að forsendur hafi brostið fyrir frekari sölumeðferð á eignarhlut Arion banka í AFLi-sparisjóði, sbr. ákvörðun nr. 9/2015. Þar af leiðandi séu ákvæði greinar 5.3 í ákvörðunarorðum hér með virk. Felur það í sér að ekki að hafa tekist samningar um sölu eignarhlutar Arion banka í AFLi innan sölutímabilsins þrátt fyrir að gripið hafi verið til nauðsynlegra sölutilrauna. Skal Arion banka því heimilt að grípa til nauðsynlegra ráðstafana, þ.m.t. kaupa á stofnfjárbréfum í eigu þriðju aðila, með það að markmiði að sameina AFL við Arion banka.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér .