Helga Jónsdóttir lögfræðingur hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu frá 1. desember 2010 nk.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu en þar segir að Helga hafi haft með höndum stjórnunarstörf á vegum opinberra og alþjóðlegra aðila í 21 ár.

Hún var skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu, aðstoðarmaður Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra og síðar utanríkisráðherra 1983-1988, bæjarstjóri Fjarðarbyggðar 2006-2010 og borgarritari í Reykjavík 1995-2006 þar sem hún stýrði stjórnsýslu og fjármálum og var staðgengill borgarstjóra.

Helga var varafastafulltrúi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í framkvæmdastjórn Alþjóðabankans í Washington 1992 til 1995 með ríka ábyrgð á þróunaráætlunarmati hagkerfa aðildarríkja. Árið 2005 var hún gestafræðimaður við London School of Economics í hagsögudeild skólans en áður hafði hún m.a. þreytt nám á vegum fræðslustofnunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í gerð þjóðhagsreikninga, þjóðhagfræði ofl.

Helgi situr nú einnig í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.

Þá hefur hún sótt sér viðbótarmenntun í stjórnun, stærðfræði og tungumálum. Helga hefur setið í fjölmörgum stjórnum þar á meðal þriggja lífeyrissjóða auk stjórnar Nýja Kaupþings, síðar Arion banka. Hún var formaður Tryggingaráðs 1987-1989 og stjórnarformaður Landsvirkjunar 1995-1997.