Ásta Rut Jónasdóttir tók í gær við formennsku í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Hún er skipuð af VR. Varaformaður er Helgi Magnússon, skipaður af Samtökum iðnaðarins. Á vef lífeyrissjóðsins kemur fram aðrir stjórnarmenn eru Birgir M. Guðmundsson, Fríður B. Stefánsdóttir og Páll Ö. Líndal, skipuð af VR, Anna G. Sverrisdóttir, Benedikt Kristjánsson og Birgir Bjarnason skipuð af samtökum atvinnurekenda.