Gengið hefur verið frá samningum um kaup Hertz bílaleigunnar á 422 nýjum Toyotabifreiðum sem afhentar verða  fyrir sumarvertíðina í ár.

Í tilkynningu frá Toyota kemur fram að um er að ræða 255 Aygo, Yaris, Corolla, Auris, Verso, Urban Cruiser og Avensis fólksbíla, um 170 Land Cruiser, Hilux og Rav4 jeppa og jepplinga auk Hiace bíla sem búnir eru fyrir átta farþega auk ökumanns.

Með samningum við Hertz er fjöldi Toyotabifreiða sem íslenskar bílaleigur hafa keypt á þessu ári kominn í 630 en það er rúmlega helmingsaukning frá síðasta ári eftir því sem fram kemur í tilkynningunni.

Við undirritun samnings um kaup Hertz á bílum frá Toyota. Á myndinni eru f.v.: Kristján Þorbergsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Toyota á Íslandi, Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, Sigfús B. Sigfússon, framkvæmdastjóri Hertz, Haraldur Þ. Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota Kópavogi, Sigurður Berndsen, fjármálastjóri Hertz, Hlynur Ólafsson, viðskiptastjóri hjá Toyota Kópavogi, Hendrik Berndsen, stjórnarformaður Hertz og Kristinn J. Einarsson, sölustjóri Toyota í Kópavogi.

© Aðsend mynd (AÐSEND)