Hilton International gerir á hálfs árs fresti úttekt á hótelum keðjunnar víðs vegar um heiminn. Á dögunum voru birtar niðurstöður úr nýju mati þar sem Hilton Reykjavík Nordica fær framúrskarandi einkunn.

Er þetta með betri niðurstöðum sem Hilton Nordica Reykjavik hefur fengið í þau ár sem hótelið hefur starfað sem Hilton. Skoðunin er ítarleg og varðar almennan rekstur hótelsins, þjónustustaðla, þjónustueinkunn frá hótelgestum, hreinlæti og er allt hótelið tekið út eftir ströngustu reglum Hilton.

Hilton Reykjavík Nordica er í dag fyrsta sæti hvað varðar hreinlæti af 271 Hilton hótelum sem vinna samkvæmt þessum stöðlum Hilton. Einnig voru nýlega teknar út framkvæmdir sem hafa verið gerðar á hótelinu, bæði að innan sem utan og fékk hótelið hæstu einkunn í þeim flokki.

Hilton Reykjavík Nordica hefur gengist undir gagngerar endurbætur að undanförnu og skartar nú nýrri ásýnd sem miðar að því að skapa aukin þægindi fyrir gesti.