Úrvalsvísitalan hækkaði um 6,5% á fyrsta fjórðungi ársins, þrátt fyrir töluverðar lækkanir síðustu vikur, segir greiningardeild Kaupþings banka.

Sé það sett í samhengi við lengra tímabil má sjá að hækkun fjórðungsins er nokkuð yfir meðaltals ársfjórðungshækkun frá upphafi vísitölunnar, sem nemur um 5,9%.

Gengi margra félaga hækkaði verulega frá áramótum en 7 félög í Úrvalsvísitölunni hækkuðu um meira en 10%.

Þó hefur vísitalan skilað mun betri ávöxtun í níu af síðustu ellefu ársfjórðungum en ávöxtunin er engu að síður góð, segir greiningardeildin.

Af einstökum félögum hækkaði Kögun mest á fjórðungnum, en hækkun félagsins nemur 22,7%, leiðrétt fyrir arðgreiðslum. Þar á eftir kemur Actavis, en gengi bréfanna hækkaði um 19,7%, og þá FL Group með 18,0% hækkun.

Mest lækkun varð á gengi Flögu á fjórðungnum og nam lækkunin 33,2%.