Hlutabréf hafa lækkað í Evrópu það sem af er degi og eru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiða lækkanir dagsins að sögn Reuters fréttastofunnar og hefur FTSEurofirst 300 vísitalan í morgun lækkað um 1,1%.

Þannig hefur Alliance & Leicester bankinn lækkað um 6,7%, HBOS um 8% og UBS bankinn um 3,4% svo dæmi séu tekin.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 1,1%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan lækkað um 1,5% og í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 1,2%.

Þá hefur CAC 40 vísitalan í París lækkað um 1,7% en í Sviss stendur SMI vísitalan í stað.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 0,8% og í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 0,7%.