Hlutabréfavísitölur hafa hækkað í dag bæði í kauphöllum í Evrópu og í Bandaríkjunum. Hækkunin í Evrópu nemur um 3% og hefur þýska vísitalan DAX hækkað um 3,7% það sem af er degi. Í Bandaríkjunum hafa vísitölur hækkað minna enda stutt síðan viðskipti byrjuðu en hækkunin nemur á bilinu 1% til 2%. S&P 500 hefur hækkað um 1,99% og NASDAQ um 1,98% það sem af er degi.