Hlutabréfavísitölur hafa lækkað vestanhafs það sem af er degi. Dow Jones vísitalan hefur lækkað um 0,32%, Nasdaq um 0,21% og S&P 500 um 0,2%.

Hlutabréfavísitölur í Asíu hafa hækkað lítillega frá opnun. Nikkei vísitalan hefur hækkað um 1,1% frá opnun en aðrar mun minna, t.d. hefur Asia Dow vísitalan hækkað um 0,13% það sem af er degi.