Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurði nr. 3/2008 staðfest að hluta ákvörðun Neytendastofu nr. 8/2008.

Brimborg, sem er umboðsaðili Volvo á Íslandi,  kvartaða yfir auglýsingu Sparibíls á Volvo bifreið sem og fullyrðingum á vefsíðu Sparibíls.

Á vef Neytendastofu segir að Neytendastofa hafi komist að þeirri niðurstöðu að fullyrðingar í auglýsingu Sparibíls hafi brotið gegn ákvæðum 6. og 7. gr. laga nr. 57/2005 um óréttmæta viðskiptahætti og gagnsæi markaðarins. Þá hafi fullyrðingar á vefsíðu Sparibíls brotið gegn ákvæðum 5. gr sömu laga um góða viðskiptahætti.

Áfrýjunarnefnd neytendamála taldi Sparibíl ekki hafa brotið gegn ákvæði 5. gr. laganna með því að bjóða kaupendum bifreiðatryggingu gegn sérstöku gjaldi. Í 5.gr. segir að óheimilt sé að hafast nokkuð það að sem brýtur í bága við góða viðskiptahætti í atvinnustarfsemi eins og þeir eru tíðkaðir eða eitthvað það sem óhæfilegt er gagnvart hagsmunum neytenda.

Úrskurð áfrýjunarnefndar  neytendamála nr. 3/2008 má lesa hér