Húsnæði verslunarinnar Illum við Strikið og Köbmagergade í Kaupmannahöfn hefur verið selt fyrir 220 milljónir evra. Ástralski fjárfestingasjóðurinn Macquaries hefur fest kaup á húsinu samkvæmt danska viðskiptablaðinu Börsen. Húsnæði Illum var á tímabili í eigu íslenskra fjárfesta.