Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 3,5% í dag og stóð við lok markaða í 915 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 0,5% í gær en hefur lækkað jafnt og þétt í allan dag en það er Century Aluminum sem leiddi lækkanir dagsins með því að lækka um 8,8%.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 1,9% og stendur nú í 315 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins eitt félag, Össur hækkaði í dag.

Velta með hlutabréf var um 380 milljónir króna líkt og í gær en þar af voru rúmar 200 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá var velta fyrir tæpar 139 milljónir króna með bréf í Marel og rúmar 32 milljónir króna með bréf í Össur.

Velta með skuldabréf nam í dag um 9,2 milljörðum króna en líkt og í gær var mesta veltan með bréf í flokki ríkisskuldabréfa 19 0226 eða um 2,7 milljarðar króna.