Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í dag og stóð við lok markaða í 631 stigi samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,3% á föstudag og hélt áframað lækkað strax við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en ekkert félagið hækkaði þó í dag.

Velta með hlutabréf var tæpar 120 milljónir króna en þar af voru um 54 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá var velta fyrir rúmar 37 milljónir króna með bréf í Össur og tæpar 19 milljónir með bréf í Century Aluminum