Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,60% og er 7.611 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 9.999 milljónum króna.

Kaupþing hækkaði um 2,36%, FL Group hækkaði um 1,99%, Actavis Group hækkaði um 1,58%, Glitnir hækkaði um 1,47% og Straumur-Burðarás hækkaði um 1,44%.

Atlantic Petroleum lækkaði um 1,7%, Marel lækkaði um 0,67%, Nýherji lækkaði um 0,62% sem og Teymi, og 365 lækkaði um 0,55%.

Gengi krónu veiktist um 0,22% og er 120,7 stig.