Úrvalsvísitalan  lækkaði um 1,3% og er 4.604 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Velta á hlutabréfamarkaði nam tveimur milljörðum króna.

Icelandair Group lækkaði um 4,8% og hefur lækkað um 13,2% á síðustu sjö dögum.

Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu lækkuðu í dag. Danska vísitalan OMXC lækkaði um 0,4%, norska vísitalan OBX lækkaði um 0,8% og OMXS lækkaði um 2,5%, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.