Íbúðalánasjóður býður til sölu tvær blokkir á Akranesi, sem báðar eru á byggingarstigi.

Ágúst Kr. Björnsson, sviðsstjóri eignastýringar hjá Íbúðalánasjóði, segir í samtali við fréttablaðið Skessuhorn gert ráð fyrir að selja blokkirnar í heilu lagi, hvort um sig eða þær báðar saman.

Báðar blokkirnar eru upp á fimm hæðir með 20 íbúðum í hvorri þeirra.

Íbúðalánasjóður hefur upp á síðkastið verið gagnrýndur fyrir að halda fast í eignir sínar og hvorki selja þær né leigja út þar sem eftirspurn er eftir leiguhúsnæði, svo sem á Selfossi.