Íbúðaverð hækkar nú hraðar en byggingarkostnaður. Þetta kemur fram í morgunkornum Íslandsbanka í dag.

Undanfarið ár hefur vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 5,3% en tólf mánaða hækkun byggingarkostnaðar mælist nú 5,0%. Á síðasta ári var hækkun byggingakostnaðar komin upp í 11,4% en sú hækkun litaðist af gengisþróun krónunnar og launahækkunum.

Í morgunkornunum segir að þetta samspil íbúðaverðs og byggingarkostnaðar ætti að öllu jöfnu að verða til lþess að arðsemi í byggingariðnaði muni aukast á nýjan leik og nýbyggingum íbúða fjölga, en byggingariðnaðurinn hefur verið í dvala allt frá hruni.

"Þegar virðist einhver hreyfing vera komin á þennan markað á nýjan leik en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs jukust fjárfestingar í íbúðarhúsnæði um 7% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en mikill samdráttur hefur verið í íbúðarfjárfestingu undanfarin ár og er hún enn í algjöru lágmarki miðað við það sem áður var. Á síðasta ári jókst fjárfesting í íbúðarhúsnæði um 8,6% eftir að hafa dregist saman um 17% árið 2010, 56% árið 2009 og 22% árið 2008. Á síðasta ári nam fjárfesting í íbúðarhúsnæði 1,5% af vergri landsframleiðslu en á tímabilinu 1998-2008 var þetta hlutfall að meðaltali 5,3%. Á síðasta ári var byrjað á 68 nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu en til samanburðar var byrjað á 419 íbúðum árið 2007," segir í morgunkornunum.