Iceland Express ætlar að fjölga ferðum milli Íslands og London frá 26. febrúar næstkomandi. Frá þeim tíma mun félagið fljúga ellefu sinnum á viku á þessari flugleið, sem er aukning um tvö flug á viku.

Í fréttatilkynningu segir að London hafi verið einn af vinsælustu áfangastöðum Iceland Express frá stofnun félagsins, en borgin var annar tveggja fyrstu áfangastaðanna sem fyrirtækið hóf flug til árið 2003. Sala á þessum nýju dagsetningum er hafin og verð er frá 7.995 krónum.

Matthías Imsland forstjóri Iceland Express segir í tilkynningunni að fjölgun ferðanna séliður í að auka þjónustu á flugleiðinni til London, enda er þetta spennandi og vinsæll áfangastaður. ,,Þar spilar einnig inn í stöðug fjölgun fólks í viðskiptaerindum til borgarinnar og nú geta farþegar farið fram og til baka samdægurs með Iceland Express, sem eykur sveigjanleika fólks í viðskiptaerindum til mikilla muna.”