Ingibjörg R. Guðmundsdóttir varaforseti ASÍ og Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri ASÍ tilkynntu bæði í gær að þau hygðust bjóða sig fram til forseta Alþýðusambandsins.

Nýr forseti verður kjörinn á ársfundi ASÍ sem haldinn verður 23.-24. október en þá lætur Grétar Þorsteinsson núverandi forseti af störfum eftir 12 ára farsælt starf.

Þetta kemur fram á vef ASÍ.