Árni Samúelsson, eigandi Sambíóanna og Róbert Melax, stofnandi Lyfju og eigandi Skífunnar, Regnbogans og Smárabíós, skoða nú ásamt hópi fjárfesta að yfirtaka sænsku kvikmyndahúsakeðjuna Sandrews, sem er sú næst stærsta á Norðurlöndum. Þetta kom fram í Viðskiptablaðinu í morgun. Árni Samúelsson segir reyndar að kvikmyndahúsakeðjan hafi verið seld fyrir þremur mánuðum síðan, sænska kvikmyndafyrirtækinu SF en að samkeppnisstofnunin í Svíþjóð hafi brotið upp þennan samning vegna þeirrar einokunar sem myndist taki fyrirtækið við rekstrinum og vilja að dómstólar ógildi samninginn.

"Stóru kvikmyndaverin hafa verið í sambandi við okkur um hvort við séum tilbúnir að taka við rekstri þessarar keðju og get ég sagt að við erum tilbúnir til þess ef dómstólar ógilda samninginn sem ég tel mjög líklegt að verði," segir Árni í samtali við Viðskiptablaðið í morgun.

Sjá nánar í Viðskiptablaðinu í morgun.