Fjármálaráðherra hefur skipað Ívar J. Arndal aðstoðarforstjóra í embætti forstjóra ÁTVR frá 1. september nk.

Ívar hefur gegnt starfi aðstoðarforstjóra ÁTVR frá árinu 2000 og var settur forstjóri í eitt ár 2003 ? 2004. Hann er vélaverkfræðingur að mennt, en hefur einnig meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu, auk náms í viðskipta- og rekstrarfræði.