Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman á milli vikna í vikunni eftir að hafa aukist verulega vikuna á undan.

Þannig nam veltan í vikunni 1.772 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 2.039 milljónir króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 13% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkaði í vikunni, aðra vikuna í röð, og er nú 1.490 milljónir króna. Fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 45 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú aukist um 47% á milli ára en hafði á sama tíma í fyrra hækkað um 24% á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta jókst um 12 milljónir króna á milli vikna í vikunni og nemur nú 1.1688 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.618 milljónir króna á viku og hefur aukist um 17% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 64 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 70 samninga í vikunni á undan. Alls var 56 samningum þinglýst að meðaltali á viku á síðasta ári en 53 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning nam 27,7 milljónum króna í vikunni, samanborið við 29 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 28,2 milljónir króna.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 28,2 milljónir króna á hvern samning.